Geira

Undur og Stórmerki

03.04.2007 17:05:25 / Gigga

Flutt yfir á 123.is

 

Nýja bloggið er á http://www.123.is/geira/    

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 20:16:54 / Gigga

Draumar

 

Ég var að surfa netið í dag enda heimaliggjandi (veik) og hafði lítið annað að gera en specca sjónvarp og pikkast á netinu. Á þessu ferðalagi mínu ákvað ég að kíkja á youtube.com enda yfirleitt alltaf eitthvað áhugavert að finna þar og í dag sá ég að það var verið að finna sigurvegara í ákveðnum flokkum á heimasíðunni. Í flokki tónlistar vann ung stúlka sem hafði nýtt sér tæknina til að koma sér á framfæri og virðist sem draumar hennar hafi ræst enda ansi stór hópur sem sækir efni til Youtube.com ;) ....Í öðrum flokki einskonar flokki teiknimynda var mynd af kiwifugli sem átti sér þann draum heitastann að fljúga, málið er að kiwifuglar hafa ekki vængi og því ansi erfitt að taka á flug en hann einsetti sér að láta draum sinn rætast og tókst það, reyndar flaug hann bara einusinni en það var samt þess virði .... sætt en sorglegt

Kiwifuglinn

Tónlistarkonan

En talandi um drauma þá dreymdi mig um daginn að ég var öll úr slími hmmm hvað ætli það þýði :$ ... er ég sveiganleg eða viðbjóðsleg...eða var þetta bara til að segja mér að ég yrði geggjað stífluð og myndi nota heilan regnskóg til að sníta mér næstu daga :lol: ... já þegar stórt er spurt.

En s.s. draumar geta verið misjafnir, skemmtilegir, breyta lífi manns eða láta mann taka aðrar stefnur á meðan aðrir draumar eru best geymdir í kollinum á manni þar sem þeir gera sem minnstan skaða.

Góða nótt og dreymi ykkur vel :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 08:59:38 / Gigga

Banaslys og ökuníðingar ....

 

Banaslys í umferðinni.... svona fyrirsagnir grípa mann alltaf um hjartastað og hugur manns er hjá þeim sem hafa misst ástvin á svo skelfilegan hátt. Nú hafa orðið 2 banaslys og alvarlegt slys þar sem fórnarlambið er ílla farið og mun taka langann tíma að jafna sig en slíkt gleymist oft, hve lengi fólk er að jafna sig eftir slíkt áfall, bæði líkamlega og andlega en hugur minn er hjá þeim sem eiga um sárt að binda.

Vona ég að fólk taki höndum saman og fái Suðurlandsveginn lagfærðan, helst tvöfaldaðan alla leið og taki "ostaskeran" í burtu sem er á milli akstursleiða enda stórhættuleg skipting fyrir t.d. mótorhjólafólk ef það myndi lenda á þessu 8| ...

 

Í gær sá ég myndband af mótorhjólakappa sem er á næstum því 300 km/hraða  og er þessu myndbandi tranað fram sem einhversskonar lofgjörð um viðkomandi ökumann sem heldur því fram að engin hafi verið í hættu við gerð myndbandsins 8| Ég sá bara hvernig vitið flaug framhjá honum á 290 km/hraða og honum var slétt sama...sorglegt að fullorðnir menn skuli vera svona ábyrgðarlausir, þarf enginn að segja mér hvað gerist ef mótorhjólamaður kemur á 290 km/hraða á siglingu og ætlar sér frammúr ef ökumaður bílsins ákveður að taka einnig frammúr en gleymdi að setja stefnuljós, gat ekki lesið hraða hjólsins og býst ekki við hlut á ljóshraða frammúr sér.....hver tapar þarna? Já, ég vona að sá sem þarna á í hlut og aðrir sem hegða sér álíka nái viti sínu aftur og fari að hugsa um fleiri en sjálfa sig í umferðinni....kallast meðvitund ;)

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 20:31:23 / Gigga

Páskahret og 300 ..

 

Það virðist eitthvað erfitt fyrir veðrið að ákveða sig þessa dagana, páskahretið fljótt á ferðinni og plagar landann enn einusinni en þó varla neitt nýtt að íslenskt veðurfar njóti þess að leika sér að okkur. Námsmenn eru farnir að líkjast beljum á vorin, vita að páskafríið er að renna í hlað og fá strax fiðringin að þurfa "gera eitthvað". Eflaust fara sumir í frí erlendis með foreldrunum nú eða einir á meðan aðrir svitna hér heima í eftirskólavinnunni og reyna mala gull fyrir sumarfríið eða bara næsta djammi :lol: Ég sjálf ætla bara njóta þess að vera heima hjá mér, fara yfir eitthvað af því sem ég kannski missti af í náminu og jafnvel lesa eitt stk bók sem er ekki námsefni. Verða eflaust ágætis páskar, fer í 2 stk fermingar, Dóri (litli brósi Adda) er að fermast og Kristjana Vigdís (frænka Adda) líka svo það verður svaka fjör...engin ferming mín megin þetta árið en þetta er líka ágætt. Flott að komast í kökur og gúmmelaði um páskana 8)

En að allt öðru, næsta mynd sem ég ætla mér að sjá í bíó er300 en sú mynd á víst að vera svakalega töff. Ég verð að viðurkenna að ég er bæði spennt og smeyk þar sem þetta er um einn flottasta bardaga sögunnar þegar Leonidas, konungur Spartverja barðist með 300 mönnum gegn ofurefli Persa við Thermopylae (Laugaskarð) árið 480 e.k. Þetta er frábært efni í mynd og miðað við það sem ég hef heyrt þá er þetta bara nokkuð vel gert en stíllinn er fengin frá comicbókahöfundinum Frank Miller sem gaf út smásögur um spartverjana árið 1998. Ég mun svo tjá mig hér þegar ég hef séð myndina og auðvitað vona ég að það séu tveir þumlar upp ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 13:46:29 / Gigga

Árshátíð Símans

 

 

 

 Laugardalshöllin verður í sínum fegursta búning í dag enda árshátíð Símans haldin hátíðleg og pottþétt troðfull dagskrá af einhverju skemmtilegu. Sumar konurnar hafa látið sauma á sig kjóla á meðan aðrar dusta rykið af gamla dressinu og láta sér duga greiðslu og förðun. Markmið kvöldsins er að njóta þess að vera saman og skemmta sér og reyna gleyma amstri hins venjulega vinnudags. 

Matseðill kvöldsins 

Forréttur : Suðrænt skelfiskasalat með mangó, fersku koríander og sojakaramellu..

Aðalréttur : Heilsteikt nautalund með kartöfluköku, brasseruð rótargrænmeti og Pinot-noir soðgljáa..

Eftirréttur : Dome súkkulaðimousse með jarðarberjum og hindberjasósu..

Veislustjórinn er : Benedikt Erlingsson, leikari 

Hljómsveit : Todmobile .... sem ég fæ loksins að sjá LIVE, ég náði aldrei að fara á tónleika með þeim in the 90´s :lol:

 

En semsagt, svaka fjör í kvöld og allir í sínu fínasta pússi, hlakka til að hitta alla og hrista mig á dansgólfinu með Magga brósa :lol:


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 10:03:38 / Gigga

Mið-önn

 

 

 

Skólinn hálfnaður, árshátíðar og fermingartíminn að hefjast og svo páskafrí, já það er bara allt að gerast. Ég er ekki búin að þurfa gera neina almennilega ritgerð það sem búið er á þessari önn og finnst það hálf skrítið, bara lítil verkefni hmmm... það hlýtur að detta ofan á mig einhver ritgerðarskriða fyrir páska, ég trúi ekki að þetta verði svona easy. Reyndar þarf ég að moka smá yfir letiskítinn í þjóðhagfræðinni þar sem ég hef ekki verið að brillera í þeirri deildinni og ætla að taka mig á nú seinni helming annar.

Daníel er að koma sér fyrir í skúrnum, smátt og smátt verður þetta svaka kósý hjá honum og auðvitað skvísunni Ölmu sem mun hjálpa gaurnum með að nota kvennlegt innsæi (setja glös á réttan stað, þurrka af og auðvitað raða húsgögnum smekklega) :lol: ........

Árshátíð Símans er næsta laugardag og að sjálfsögðu mætum við Addi galvösk og fín í partý ársins. Reyndar varð sú breyting á að Síminn telur Reykjanesbæ ekki lengur til landsbyggðar (hmm vorum það í fyrra) og því splæsa þeir ekki hótelgistingu, ákváðum því að smella okkur bara heim eftir djammið og geta sofið vel út :haha:.

Annars lítið af mér að segja, bara þessi venjulegi Dallas þáttur, alltaf nóg að gera en samt engin niðurstaða :lol:


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 16:40:36 / Gigga

the movers..

 

Jæja, allir komnir á sinn stað og nokkurnveginn í heilu lagi :lol: en þó er eftir að losa skúrinn í gamla húsinu sem þó klárast nú um helgina með hjálp góðra vina. Svakalega skrítið að sjá húsið svona tómt og já, það er sko sannarlega verkefni fyrir höndum hjá Reynaldi og Ásdísi við að mála því ég sá að mamma mín hefur tekið ástfóstri við naglabyssuna einhverntímann :lol: Daníel er kominn í skúrinn og auðvitað þurfti eitthvað að klikka þar fyrst við höfum haft svona lítinn tíma, niðurfallið í sturtunni gubbar bara og krafturinn lítill sem enginn, vantar að setja blöndunartækin á baðinu og eldhúsinu og það er sírennsli í WC-inu :$ ...næg eru verkefnin en held samt að Daníel eigi eftir að koma sér bara vel fyrir þarna. Mamma er farin að gera kósý í íbúðinni sinni og kisa líka, eða það vonum við a.m.k. :haha:

Annars er lítið að frétta af mér nema þetta venjulega svo ég eyði ekkert meiri tíma í solis bloggerí, kem kannski seinna með stórkostlegar pólitískar yfirlýsingar eða eitthvað álíka epískt en þangað til bara "knús og kossar"...chiao


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 21:50:10 / Gigga

Próftörnin

 

próf, próf og meiri próf. Lífið er eitt stórt próf, stundum veit maður svörin og lífið er leikur einn, en aðra daga stendur maður á gati og skítfellur. Samskipti er t.d. sniðugt fyrir krossapróf, margir möguleikar í boði og stundum ekkert svar rétt. Annað sniðugt próf er framtíðarplön þar sem þyrfti að rökstyðja svar sitt vel enda töluverðir hagsmunir í húfi og auðvitað makaprófið...úff þar eru krossar, ritgerðir og stílspurningar þar sem þarf að útskýra vel hvað er : persónuleiki, ást, gáfur, skemmtilegt og útgeislun. Kannski það sé málið afhverju svo margir eru að falla á lífinu í dag, það er of margt um að vera, of mikið um truflanir til þess að vanda valið vel og geta haft eðlileg samskipti við þá sem skipta mann máli...hmm.. enn ein spurningin :$

En s.s. ég er að fara í próf í fyrramálið í nát103, líffræði og sökum þess að ég er búin að vera A) veik, B) hjálpa mömmu að flytja og C) utan við sjálfa mig... þá mun ég líklega falla á þessu prófi :S Svo á ég líka eftir að taka próf í ÞJÓ103 sem var í gær og er hreinlega að springa á tímaleysi...týpiskt að vera með próftörn þegar ég er með cottonhead af kvefi og í spreng við að koma mömmu og Daníel milli húsa :lol: En nóg um kvart og kvein, ég set bara upp hattinn, fetti mig og bretti upp ermar og að sjálfsögðu redda ég málunum.

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 19:24:44 / Gigga

And the Oscar goes to ...

 

Í kvöld gerist sá árlegi merki atburður að stjörnur Hollywood mæta á rauða dregilinn hvert öðru glæsilegra enda búin að fara í gegnum förðunarvélina í tilefni dagsins. Í ár er það breyting hjá mér að ég hef ekki séð neina þeirra mynda sem koma til greina sem besta myndin og þurfti ég því að fara á www.imdb.com til að lesa mér hreinlega til svo ég geti cirkað á hver sé líklegust. Ég er spennt að sjá allar þessar myndir enda fá þær allar frábæra dóma og því verður eflaust brjáluð spenna í kvöld þegar kynnirinn segir þessi frægu orð "And the Oscar goes to...." Ég segi The Queen en mig langar sjálfri mest að sjá Babel :haha:

Besta leikkonan er að mínu mati Helen Mirren en það er eingöngu byggt á öðrum myndum sem hún hefur leikið í þó að þetta séu allt svakalega flottar konur í bransanum.

Besta leikkonan í aukahlutverki... eflaust hlýtur Jennifer Hudson þennan titil en ég er svakalegur Kate Blanchet aðdáandi og krossa því puttana fyrir hana.

Besti leikarinn..Forest Whitaker er pottþéttur í þetta og vel að titlinum komin að mínu mati.. þarf ekki einusinni að sjá myndina til að vita að hann hefur neglt þetta.

Besti karlleikari í aukahlutverki...Þessi flokkur er dáldið erfiðari þar sem mjótt er á munum en ég vil veðja á Jackie Haley enda í hlutverki sem ekki allir gætu tæklað.

Svo er það síðast en ekki síst .. Besti leiksstjórinn en þar er um svakalega þungavigtagaura að ræða. Alejandro González Iñárritu fyrir Babel, Scorsese fyrir The Departed, Eastwood fyrir Letters from Iwo Jima, Frears fyrir The Queen og Greengrass fyrir United 93. Ég persónulega tel að Scorsese taki þetta núna og er víst ekki ein um þessa skoðun. Kallinn á þetta bara hreinlega skilið sama hvað allir segja.

Það eru auðvitað fleiri flokkar en ég bara nenni ekki að veðja um þá alla ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 12:57:52 / Gigga

Tónleikar, parketlögn og flutningar

 

 

 

Helgin er troðfullur pakki af hinum ýmsu athöfnum. Í dag er Kristófer með í sínum fyrstu tónleikum (í íþróttahúsinu í Njarðvík) en hann er búin að vera læra á kassagítar í vetur og sjáum við árangurinn í dag :haha: Ég er að sjálfsögðu svakalega spennt og hlakka til að sjá guttann gera sitt besta ásamt öllum hinum hæfileikaríku krökkunum.

Addi er að byrja parketleggja í skúrnum og þá fer nú að koma mynd á þessa fyrstu íbúð Daníels. Hans partur af skúrnum er um 35m2 en við geymdum smá fyrir geymsludraslið okkar. Ég er þess fullviss að Daníel á eftir að líða vel þarna enda með allt til alls og bestu nágranna í heimi :lol:

Í dag ætla ég einnig að fara aftur til múttu og reyna hjálpa aðeins til við að koma hlutum í kassa, sortera og henda en ég verð að viðurkenna að þetta verkefni er HUGE og stundum erfitt bara vegna þess að þetta er ákveðin hreinsun sem á sér stað í lífi mömmu.

Skúrinn er oft dálítill þverskurður af lífi fólks, það sem það hefur ferðast og sankað að sér í gegnum lífið ásamt því sem börnin hafa skilið eftir þegar þau flýja hreiðrið. Minningarnar streyma fram og stundum erfitt að láta frá sér hlut sem maður veit að hefur ekkert notagildi nema til að hlýja hjarta og hug. Ég er búin að vera ansi grimm og hent mörgu en þó neitað sumum hlutum sinni hinstu hvíld einfaldlega vegna þess að þeirra tími er ekki kominn og hjartað og hugurinn þurfa enn á þeim að halda.

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 15:03:13 / Gigga

ehm.. America the great

 

Ok, ég er ekki að alhæfa um að allir Bandaríkjamenn séu dáldið "slow" þegar kemur að hinum ýmsu málefnum en þetta fannst mér fyndið :lol:

 

http://www.youtube.com/watch?v=fJuNgBkloFE&eurl=http%3A%2F%2Fettf%2Enet%2F 

 

Endilega horfið á og svarið svo hvað ykkur fannst ;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 09:59:35 / Gigga

Lag á heilann

 

 

Við höfum flest öll upplifað það að fá lag á heilann, lag sem sönglar í hausnum á manni allann daginn og maður óvart raular hvort sem maður er í strætó, í biðröð í búðinni eða á almenningsklósettinu.

Ég er að upplifa svona dag, ég heyrði lag á netinu og það er bókstaflega búið að grafa sig fast við heiladingulinn á mér. Lagið er að uppruna frá Finnlandi og er einskonar þjóðlag en í dag er það þekkt undir nafninu "Holly Dolly song" . Ég fann 3 útgáfur af því á netinu og hér eru þær :

http://dojo.fi/~rancid/loituma__.swf

Flottasta útgáfan  :  

http://youtube.com/watch?v=Ffqy8U4ceFA&mode=related&search=

og upprunalega útgáfan :

http://youtube.com/watch?v=xJF6YPX4mIM&mode=related&search=

Þetta eru nánari upplýsingar um þetta erfiða lag .....

http://en.wikipedia.org/wiki/Loituma

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 14:00:41 / Gigga

Forgangur

 

 

Ferðalög eru ofarlega í huga mér þessa dagana, eflaust vegna þess að það dynur yfir mann bæklingaflóð með myndum af hvítum ströndum, strákofum og brúnum kroppum,hmm blautur draumur hjá sumum :lol:... Ég veit að enn eitt sumarið kem ég til með að krumpa saman þessa bæklina og setja aurana í blessað húsið mitt sem ég í sannleika sagt er komin með ógeð á, ef það er eitthvað sem ég sé eftir þá er það að hafa keypt hús sem þarf sífelt að ausa peninga í :$ .. ekki misskilja mig, mér líður vel þarna en ég er bara orðin þreytt á að sífelt vera lagfæra það. Næsti stóri biti eru gluggarnir, þeir eru bókstaflega að mygla og rotna út úr húsinu, inní glugganum í hjónaherberginu myndast gró og myglublettir og sama hvað ég þríf þarna, það myndast aftur enda nægur raki þarna fyrir mygluna til að þrífast.

Það hefur oft komið upp í hug minn að selja kofann í því ástandi sem hann er og hreinlega flytja í fjölbýli þar sem ég þarf ekki að hugsa um neitt viðhald en þá hugsar maður um blessað privacy-ið og guggnar. Skúrinn er búinn að taka sitt í vetur og það eflaust eykur enn á þennan pirring minn en þó veit ég þær framkvæmdir eru á síðustu metrunum og það róar mann örlítið. Eflaust er bara of margt að pirra mig þessa dagana, mamma að flytja og ég hef ekki getað sinnt henni nægilega vel, skúrinn, skólinn og önnur persónuleg málefni sem draga úr mann máttinn. Nú vil ég ekki vera svartsýn eða of vælin en stundum er maður bara pirr og trött og verður að fá að blása....ég verð vonandi skemmtilegri á morgunn ;)

Annars hefur húsið og reikningar auðvitað forgang svo ég held bara áfram að kuðla saman bæklingana og setja myndir af hvítum ströndum á desktop....

kv, vælukjóinn :P


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 10:15:51 / Gigga

Púzzluspilið ókláraða..

 

 

 

Ég ákvað að kíkja á opin dag í Háskólanum svona til að athuga hvort ég sé ekki alveg örugglega á réttri leið í lífinu ef svo má segja. Vonast ég til að fá nánari upplýsingar um sagnfræðina og hvort það séu kannski einhverjar aukagreinar sem væru spennandi með. Heimasíða HÍ hefur lengi verið í "favorites" hjá mér og þar set ég saman framtíðina eins og púzzluspil sem þó hefur ekki fullkomna mynd, einsog það vanti nokkur púzzl til að klára hana ;)

Í dag vonast ég til að finna þessi púzzl sem vantar uppá, fer ég í 60ein í sagnfræði og 30ein í listfræði, klassískum fræðum eða einhverju sem mér hefði aldrei dottið í hug :P En til þess er dagurinn gerður, til að aðstoða fólk einsog mig við að klára púzzlið. Læt ykkur vita hvort ég hafi orðið fyrir uppljómun :lol:

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 12:48:37 / Gigga

Valentines day

 

 

Njótið dagsins dúllurnar mínar :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 5 maí
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox

Klukkan
One Vision Tribute 2 John
WOW grín
Kraftaverkakrílið okkar
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1463 dögum